Klukkan

Auglýsing

wtf

18. maí 2009 klukkan 19:14
var bara að rekast á þessa siðu ... gaman að því :D

hef ekkert að gera

20. mars 2008 klukkan 14:03
jebb það er satt. ég hef ekkert að gera. þarf reyndar að stökkva út í búð og kaupa mér eitthvað að borða og klára þessa blessuðu skýrslu. ÚFF. annas er það að frétta af mér að ég er flutt í mosó. jebb til hennar systur minnar. jebb. það er nattla bara stuð :D

annas er ég komin í frí... páskafrí. það er bara gaman. er atvinnulaus eins og stendur og það er BARA FÍNT. get svoleiðis slappað af og haft það kósý :D. jebb annas er ég ekki enn að ná því að minn kæri læti bróðir er að fara að fá æfingarakstur og bílpróf og ég veit ekki hvað og hvað....!!!! djöfull fer maður að verða gamall :S

heyrru er orðin klikkað svöng svo... þanngað til næst

jebb fólk það er ég

14. febrúar 2008 klukkan 17:07
Jamm, ég hef eiginlega ekkert að gera í augnablikinu, er að fara að skella mér í það að læra og svona en ég eiginlega nenni því ekki svo ég ákvað að blogga fyrst. Annas er mest lítið af mér að frétta, alltaf nó að gera hérna meginn. Maggi er sofandi þetta krútt. enda er hann að fara á næturvakt þessi elska svo ég veit ekki hvað ég á af mér að gera á eftir, ég held að taka til sé sterkur leikur.

Annas er maður alltaf í skólanum og að vinna. jebb það er gaman. einnig er maður ástfanginn af þessu blessaða bretti sínu :D :D :D en  ég náði að slasa mig á  því síðast þegar ég fór á það svo ég hef ekkert farið á það í ALLTOF langan tíma og núna er komin rigning og snjórinn er að fara og allt í voli ;(

jebb annas er ég að spá í þvi að slutta þessu svo chao

klikkun

25. janúar 2008 klukkan 13:31
ég vill byrja á því að segja að ég á besta bíl í heimi yaris :D:D annas er ég búin að kaupa mér bretti og fór á það upp í sveit og það var mjög gaman. :D:D ég er óbrotin en dagin eftir þessa blessuðu brettaferð okkar magga í sveitina (fórum að laugardag og sunnudag) þá hélt ég að ég væri að deyja. hef sjaldan, ef ekki aldrei fengið jafn miklar harðsperrur. Stígur bró og elvar prófuðu brettið. þeir voru mjöööög töff.

annas er mest lítað að frétta. við teitur vorum veðurteppt á þriðjudaginn og það var mjög nice. horfuð á hvorki meira né minna en fimm myndir og fengum hausverk í samræmi við það (eða allavegna ég).

jebb. annas fór ég í skólan í morgun. Það tók ekki nema klukkutíma að keyra upp á skaga. jebb og ég fór einn því að helgasoninn var fastur heima hjá sér. allir bílar fastir. he he he.
fokking ógeðlsega veður, ertu að grínast. Þessi ferð var mesta bull í heimi en stelpan komst þetta :D:D enda er ég á yaris :D:D rauðum í þokkabót :P

annas ætla ég að leggjast niður og fara að sofa eða eitthvað. bara eitthvað allt annað en að læra svo bæ fólk

snjór og meiri snjór

16. janúar 2008 klukkan 23:07
Jebb það er sko snjór úti og ég elska það. Jebb en annas er stelpan með breaking news: ég, gunnhildur, er að fara á föstudaginn að kaupa mér snjóbretti. Þannig að kæru vinir og vandamenn það var mjög gaman að fá að kynnast ykkur. vildi bara koma því á framfræri að ég elska ykkur. Fjölskylda: þið eru æði. ástæðan fyrir þvi að ég vill koma þessu á framfæri er sú að ef að þessi blessaði snjór helst eitthvað frameftir þá er ég að fara á bretti um helginna og það er bókað mál að annahvort dey ég eða ferð grænmeti inn á stofnun.

Annas er bara same old í gangi hjá mér. skóli og vinna. fór reyndar í höfuðborgina í gær og hitti hákon og þórdísi og gumma og kristínu. :D við fórum á gyllta átavitan og mæli með henni, allavegna fyrir þá sem að fíla bækurnar :D

hey já ég vill fá að monta mig því ég ákvað að taka til á þriðjudaginn í herberginu hjá strákunu. eða reyndar ákvað ég að hjálpa honum arnari að taka til. jebb ég er dugleg.

vá annas er ég orðin geeeeeeeeððððveikt þreytt og er að spá í því að fara að slefa í blessaða koddan minn svo bæo

2008 gott fólk

06. janúar 2008 klukkan 16:02
jebb það er komið 2008. árið þar sem að 88 árgangurinn kemst loksins í ríkið. je gaman að því. það þarf náttúrulega ekki að spyrja að því að ég á afmæli í september svo ég bíð bara spennt á hliðarlínunni þanngað til

annas fór maður á venusar ball um áramótinn je. hef sjaldan verið svona drukkinn. jebb. annas var að bara mjög svo skemmtilegt, skemmti mér konunglega. dansaði af mér öll aukakílóin sem ég var buin að safna 2007.

annas er ég farinn að safna mér fyrir tattúi. veit ekki hvernig eða hvar ég ætla að fá mér en það er seinni tíma vandamál ekki satt :P svo ætla ég líka að fá mér gat í nefið jebb gaman að því.

annas er ég búin að vera veik síðustu daga. var að deyja úr flökurleika flesta daga (neibb er ekki ólétt né heldur þunn)

jebb annas er ég að spá í því að fara að klára að teikna myndinna sem ég var að gera :D

gunnsa kveður

jólin eru BÚINN

28. desember 2007 klukkan 18:30
jebb það er satt. ég fór samt að pæla í öllu veseninu í kringum jólin. Maður liggur við fær hjartaáfall af stressi og klárar t.d. jólagjafainnkaupinn alltaf á síðasta degi (á þorlák eða jafnvel aðfangadag), maður stendur sveitur við að þrífa í margar vikur fyrir jólin og fyrir þá sem elda þá þurfa þeir að elda í minnst fimmtán tíma á aðfangadag og fyrir hvað? jú maður borðar matinn á um það bil hálftíma og rífur upp pakkana á klukkutíma og borðar síðan nammi og meiri jólamat og fer síðan að sofa. þannig að er þetta 2 mánaða hjartaáfall að borgar sig? ég veit það ekki, maður ætti kannski bara að slappa af OG BYRJA FYRR Á JÓLAGJAFAINNKAUPUM.

annas er ég mjög sátt við mín jól. ég var bara heima hjá familýuni. ég fékk einshverja dansandi belju, hálsmenn og stress bolta, drykkjuskák, plakkat, lampa, jólatré með seríu inn í (er reyndar píramydi með svörtuskrauti og seríu inn í geðveikt flott :D ) brauðrist og ostabakka, fægiskóflu og þá held ég að allt sé upp talið :D:D þakka bara kærlega fyrir mig :D

annas var maður nú heima þegar jólaboðið dundi yfir og það voru nú meiri ósköbin :D jebb það var nattla brjálaðir krakkar út um allt og systurnar rosa fyndnar einhverstaðar annarstaðar í húsinu og við sem erum víst talin hálffullorðin í þessari fjölskyldu bárumst bara með straumnum og pössuðum okkur á því að vera ekki troðinn undir :D þetta var mjög fínt jólaboð

annas er ég að spá í því að hætta þessu blessaða bulli og fara að gera eitthvað að viti

gunnsa

Jólin jólin allstaðar

18. desember 2007 klukkan 00:18
ójá jólin eru að fara að skella á því að í dag er hvorki meira né minna en vika til jóla hell yeah!!! ég er náttúrulega búin að pakka inn heilum 4 jólagjöfum og þá eru ekki eftir nema um það bil þúsund og tvær gjafir eftir :D gaman að því

annas er komið að mínu 2-á-ári monti því stelpan var að fá úr prófunum :D ég fékk 7 fyrir verklegt og 8 fyrir allt bóklegt (uppeldisfræði, grunnteikning, aflvélarvirkjun og vélfræði) já svo fék ég 7 í skólasókn... ójá ég er heavy sátt :D allt yfir fimm er óþarfa vinna ;D

annas er mest lítið að segja nema að ég fór um daginn að vesenast fyrir ættmóðurinna sjálfa, hana ömmu Láru. lentum í basli með að setja saman kassa enda ekki fyrir gamalmenni og hálffullorðna manneskju að átta sig á því hvernig kassi er settur saman :P
annas hef ég mest lítið að segja nema gleðileg jól alli rsaman 

GUNNSA JÓLABARN KVEÐUR

jólin

03. desember 2007 klukkan 19:22
já ég er byrjuð í jólafríi og er að fara í próf þann 5 ásamt því að fara í litun og klippingu jei :D og svo til tannsa að láta rífa úr mér endajaxla. :( gaman að því

annas kíkti maður nú út á lífið í nesinu um dagninn. Það var bara stuð á duzza eins og vanalega. mér fannst allavegna mikið af borgnesingum þarna inni. maður kíkti út með Þórey nattla.

annas átti guðrún sif afmæli um daginn og það var nattla boðið upp á kökur. Stelpan að vera eins árs. rosa fín dama í jólakjól og alles. :D allgjört gull þessi stelpa. Arnór Mikael félagi minn var þarna líka auðvitað.

svo kom jón haukur í heimsókn til mín um daginn og ég verð að viðurkenna að tómatabrandarinn er ekki neitt ofboðslega spennandi eftir 3 skipti :D

annas á ég að vera að læra undir próf núna en ég nenni því ekki, ég verð sátt ef ég næ með fimmu ojá.

ég er svöng svo ég ætla að fara að fá mér eitthvað geðveikt að borða af þvi að ég er búin að fá útborgað Jibbí :D:D:D

Próf !!!!!

20. nóvember 2007 klukkan 15:10
Jebb sá tími er genginn í garð þar sem kennarar og nemendur blóta hvort öðru niður í ræmur. Iðulega sér maður kennara hlaupa eftir göngum skólan sem pappírsflóðið í höndunum, hárið illa greidd og taka geðvonskuna út á nemendum. Nemendur eru þó ekki beint mikið skári því einnig sést til þeirra að reyna að hlaupa eftir göngum skólan en skólataskan aftrar þeim för, gargandi á aðra nemendur að þeir séu ekki búin að skila hinu og þessu, óskandi þess að þeir hefðu opnað bók á önnini, nagandi neglurnar og rífandi í hár. OOHH þessi tími, þessi tími. Prófin fara að nálgast og það sést og heyrist. :P

annas er mest lítið að frétta af mér. Ég er í þessum skrifuðum orðum að bíða eftir því að Helgasoninn, sá gáfaði og virðulegi maður, sé búin í tíma og hvað er betra en að skella inn eitt stykki bloggi áður til þess að drepa tíman. jebb hitti hana þórey á föstudaginn. Þau skötuhjúin voru að ná í strákinn og hún ákvað að vera eftir í nesinu og auðvitað kíkir maður á hana. Svo kemur hún nú aftur næstu helgi og það er aldrei að vita nema maður kíki eitthvað á þetta blessaða líf í borgarnesi sem er oft á tíðum jafn mikið og í kirkjugörðum.

jebb, ég hef ekkert að segja svo ég held að ég slútti þessu drepleiðinlega bloggi bara, fer frekar og finn mér æsispennandi leik á leikjarnet :D

Prófíll

  • Nafn: Gunnhildur Jónsdóttir
  • Atvinna: N1 í bgn
  • Hjúskaparstaða: föstu
  • Um mig: wtf!!!!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

hvað á að gera 2008

Innskráningar kubbur